Erlent

Mannræningjar hóta að myrða stúlkuna

Hópurinn sem rændi þriggja ára breskri stúlku í Nígeríu hefur hótað að myrða hana ef faðir hennar samþykkir ekki að koma í stað hennar. Móðir hennar skýrði frá þessu í nótt. Stúlkunni var rænt þegar verið var að fara með hana í skólann. Stærsti uppreisnarhópurinn í Nígeríu, MEND, fordæmdi ránið á stúlkunni.

Mannrán eru tíð í Nígeríu og sérstaklega við ósa Níger-ánnar en þar er 90% af olíu landsins framleidd. Engu að síður er þar gríðarleg fátækt og berjast margir hópar fyrir því að þeir sem þar búa fái stærri hluta olíutekna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×