Erlent

Mannræningjar Margaret Hill segja hana heila á húfi

Mannræningjar Margaret Hill, stúlkunnar sem rænt var í borginni Port Harcourt í Suður- Nígeríu í morgun, hafa haft samband við föður hennar og sagt að hún sé heil á húfi. Faðir hinnar þriggja ára gömlu Margrétar starfar hjá olíufyrirtæki í borginni en stúlkunni var rænt úr bíl, af vopnuðum byssumönnum.

Breska útlendingaeftirlitið hefur krafist þess að stúlkunni verði tafarlaust sleppt úr haldi. Ekki er vitað hverjir ræningjarnir eru.

Mannrán eru algeng á svæðinu en hingað til hafa aðallega erlendir olíuverkamenn verið teknir höndum. Þeim er yfirleitt sleppt eftir að lausnargjald hefur fengist fyrir þá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×