Erlent

Læknar grunaðir

Guðjón Helgason skrifar

Ættingjar og samverkamenn læknis frá Jórdaníu eiga bágt með að trúa að hann hafi skipulagt hryðjuverkaárásina á Glasgow-flugvelli um síðustu helgi eða komið fyrir bílsprengjum í miðborg Lundúna. Athygli vekur að sjö þeirra sem nú eru í haldi lögreglu vegna málsins eru læknar eða læknanemar sem hafa starfað á Bretlandseyjum.

Frá alda öðli hafa læknar svarið eið þann sem kennur er við Hippókrates, föður læknisfræðinnar. Þeir lofa því að láta sér ávallt annt um sjúklinga sína án manngreiningarálits og að gera fólki ekki mein.

Athygli vekur að sjö þeirra átta sem nú eru í haldi lögreglu á Bretlandseyjum og í Ástralíu vegna hryðjuverkaárásarinnar í Glasgow um síðustu helgi og tveggja bílsprengna sem fundust í Lundúnum á föstudaginn eru læknar eða læknanemar sem allir hafa unnið á sjúkrahúsum á Bretlandseyjum. Einn læknir til viðbótar hefur verið yfirheyrður í Ástralíu. Enginn þeirra er fæddur á Bretlandseyjum.

Spurningar hafa því vaknað um hversu vandlega bakgrunnur lækna sem þangað koma til starfa sé kannaður. Ekki eru allir á einu máli um það. Philip Trott, lögfræðingur innflytjenda, segir lækna sem sæki um dvalarleyfi þurfa að gangast undir öryggisrannsókn og það komi honum ekki á óvart að einhverjir sleppi í gegnum netið. Sian Thomas, fulltrúi opinberu heilsugæslunnar í Bretlandi, segir fólk þurfa að vita að rannsóknirnar séu ítarlegar og vandlega framkvæmdar. Starfsfólki heilbrigiðsþjónustunnar sé gert að framkvæmda þær á hverjum stað fyrir sig.

Mohammed Abdelqader Jamil Asha er 26 ára læknir, fæddur í Amman í Jórdaníu. Hann og kona hans Marwa Dana voru handtekin aðfaranótt sunnudags vegna málsins. Samstarfsmenn hans eiga bágt með að trúa aðild hans að málinu. Ættingjar Asha trúa segja ómögulegt að hann tengist hryðjuverkum.

Jamil Asha, faðir hans, segir að fjölskyldunni hafi brugðið. Sjálfur hafi hann ekki átt von á þess. Mohammed sonur hans sé langt frá því hryðjuverkamaður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×