Innlent

Þriggja ára bið

Lóa Pind Aldísardóttir skrifar

Opinber neytendayfirvöld voru rösk þrjú ár að taka afstöðu til þess hvort Samtök banka og verðbréfafyrirtækja hefðu brotið lög um eftirlit með óréttmætum viðskiptaháttum og gagnsæi markaðarins. Sérfræðingur hjá Neytendastofu segir málið eftirlegukind frá því Samkeppnisstofnun var lögð niður.

 

Það var í maí 2004 sem Neytendasamtökin kvörtuðu undan sjónvarpsauglýsingu Samtakanna til Samkeppnisstofnunar sem þá hafði eftirlit með auglýsingum. 2005 var Samkeppnisstofnun lögð niður og verkefnin flutt til annars vegar Samkeppniseftirlitsins og hins vegar Neytendastofu. Enn liðu þó tvö ár þar til Neytendastofa sá sér fært að taka ákvörðun um kvörtun Neytendasamtakanna sem snerist um að í auglýsingu bankanna væri fullyrt að könnun Samtaka banka og verðbréfafyrirtækja sýndi að þjónustugjöld banka væru lægst á Íslandi af Norðurlöndunum.

Neytendasamtökin töldu auglýsingarnar villandi og ósanngjarnar gagnvart neytendum og könnunin sem vísað var í hefði verið gölluð. Niðurstaða Neytendastofu kom ekki fyrr en núna um mánaðamótin - röskum þremur árum síðar. Þar er fallist á sjónarmið Neytendasamtakanna og að auglýsingar bankanna hefðu verið brot gegn lögum.

Erna Jónsdóttir sérfræðingur hjá Neytendastofu segir þetta mál, eins og mörg önnur, hafa tafist vegna flutnings verkefna frá Samkeppnisstofnun til Neytendastofu. Á bernskuárum stofunnar hafi menn orðið að forgangsraða og þetta mál lent aftarlega þar sem auglýsingarnar hafi veri hættar að birtast. Hún vildi ekki svara því hvort þetta væri slöpp neytendavernd fyrir fólkið í landinu en sagði að Neytendastofa myndi standa sig betur í framtíðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×