Erlent

Barist í mosku í Pakistan

Hersveitir í höfuðborg Pakistans, Islamabad, gerðu í morgun áhlaup á mosku og trúarskóla í borginni. Þær beittu táragási og vitni sögðust hafa heyrt skothríð í nágrenni moskunnar. Stjórnvöld hafa mánuðum saman átt í útistöðum við klerkana þar og nemendur þeirra.

Þeir hafa hótað sjálfsmorðsárásum í borginni og vilja að gildi talibana verði tekin upp í höfuðborginni. Moskan gengur undir nafninu Rauða moskan eða Lal Masjid.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×