Innlent

Þúsaldarmarkmiðin í hættu

Guðjón Helgason skrifar

Þúsaldarmarkmið Sameinuðu þjóðanna um bættan hag þróunarríkjanna eru í hættu vegna loforðaflaums en lítilla efnda. Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna skorar á ríki heims að láta verkin tala.

Þúsaldaryfirlýsing Sameinuðu þjóðanna var undirrituð í september árið 2000 og samþykktu öll ríki samhljóða markmið sem þar voru skilgreind og átti að ná árið 2015. Meðal annars skal útrýma örbirgð og hungri, tryggja öllum börnum grunnmenntun, tryggja jafnrétti kynjanna og auka völd kvenna og fækka tilfellum af ungbarnadauða.

Nú þegar tímabilið sem gefið var til framkvæmda er hálfnað sendu Sameinuðu þjóðirnar frá sér skýrslu í dag. Þar er bent á að aðeins hafi fimm ríki náð eða farið fram úr gamla takmarki samtakanna um að núll komma sjö prósent þjóðarframleiðslu renni til opinberrar þróunaraðstoðar, Danmörk, Holland, Lúxemborg, Noregur og Svíþjóð.

Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, segir nokkra framþróun hafa orðið en þó séu þúsaldarmarkmiðin í hættu. Heimurinn vilji ekki ný loforð heldur efndir á þeim gömlu.

Árni Snævarr, upplýsingafulltrúi Sameinuðu þjóðanna á Norðurlöndum, var gestur í Hádegisviðtalinu á Stöð 2 í dag. Hann segir íslensk stjórnvöld ekki hafa staðið sig þegar kemur að þróunaraðstoð. Þau væru ekki einu sinni hálfdrættingur á við þau ríki sem væru að ná eða hefðu náð 0,7% markinu. Stefnt sé að því að ná 0.35% af þjóðarframleiðslu í opinbera þróunaraðstoð fyrir árið 2009.

Gæta þurfi þó sanngirni og benda á að vissulega hafi verið hagvöxtur og því meira borgað í krónum talið. Það sé hins vegar vilji almennings og fyrirtækja að leggja meira til og stjórnvöld hafi brugðist.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×