Erlent

Lieberman vill fjölga öryggismyndavélum

Joe Lieberman
Joe Lieberman MYND/AFP

Joe Lieberman, öldungadeildarþingmaður í Bandaríkjunum, segist vilja fjölga öryggismyndavélum í landinu. Hann vill taka Breta til fyrirmyndar í þeim efnum og telur að öryggismyndavélar, sem dreift er mjög víða um helstu borgir í Bretlandi, hafi átt þátt í því að hafa uppi á grunuðum í eftir tilraunir til hryðjuverka þar um helgina.

Lieberman hefur hvatt þingið til að sameinast um að endurnýja og fjölga öryggismyndavélum í Bandaríkjunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×