Innlent

Pólverji laminn

Annar Pólverjanna er nú á slysadeild þar sem meiðsl hans eru rannsökuð.
Annar Pólverjanna er nú á slysadeild þar sem meiðsl hans eru rannsökuð.

Lögregla og sjúkrabíll voru kölluð til að nýbyggingu í Mosfellsbæ um níuleytið í morgun.

Grunur leikur á að yfirmaður tveggja pólskra verkamanna hafi gengið í skrokk á þeim eftir að annar þeirra hafði gert athugasemdir við launaseðil sinn. Mennirnir leituðu aðstoðar konu í nágrenninu sem hringdi í lögregluna. Samkvæmt vakthafandi lækni á slysadeild í Fossvogi eru meiðsl annars mannsins til skoðunar. Hann er ekki alvarlega slasaður en varð sýnilega fyrir barsmíðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×