Erlent

Pólverjar vilja endurskoða Evrópusáttmála

Jaroslaw Kaczynski.
Jaroslaw Kaczynski. MYND/AFP

Pólverjar vilja taka upp viðræður um nýundirskrifaðan sáttmála Evrópusambandsins að nýju. Forsætisráðherra landsins, Jaroslaw Kaczynski, sagði þetta á fréttamannafundi í morgun. Viðbúið er að yfirlýsingin eigi eftir að valda mikilli úlfúð meðal annarra landa Evrópusambandsins.

Portúgal, sem tekur við forsæti í Evrópusambandinu af Þjóðverjum í byrjun júlí, hefur sagt Pólverjum að gleyma öllum sínum hugmyndum um breytingar á sáttmálanum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×