Innlent

Lýsir eftir bjargvætti sínum

Stúlka um tvítugt lýsir eftir manni sem bjargaði lífi hennar þann sautjánda mars í Þrengslunum. Hún biður fólk vinsamlegast að haga sér í umferðinni í sumar. Við hittum dugnaðarstúlku á Grensás í dag.

Valgerður var á leið heim til Þorlákshafnar þennan laugardag þegar allt varð svart. Í tvær vikur. Hún frétti síðar að á Þrengslaveginum hefði stór pallbíll, sem kom úr gagnstæðri átt, runnið í hálkunni og lent beint framan á litla toyota yarisbílnum sem Valgerður hafði átt í þrjár vikur.

Hún á líf sitt að þakka ókunnugum manni sem kom að slysinu.

Valgerður brotnaði illa. Annar ökklinn, bæði hnén, annað læri, önnur mjöðm, úlnliður, olnbogi og nánast öll rifbein. Til að hjálpa beinunum að gróa er hún full af plötum og skrúfum. Nýbúið er að taka nagla sem voru í úlnliðnum. Þeir voru farnir að skaga út og meiða hana.

Hún var varla vöknuð, segir mamma hennar, þegar hún hringdi í Toyota og pantaði nýjan bíl - enda fór Yarisinn vægast sagt illa í árekstrinum. Í þetta sinn hyggst Valgerður fjárfesta í bíl með bita sem varnar því að vélin lendi á ökumanni við árekstur, með stýri sem brotnar niður á við og fullt af loftpúðum.

Valgerður komst á Grensás eftir tveggja mánaða spítalavist. Fyrsta takmarkið - að-halda út klukkustund upprétt í hjólastól. Núna, eftir fimm vikur á Grensás er hún farin að geta býsna mikið.

Tveimur vikum fyrir slysið hafði Valgerður útskrifast frá snyrtiakademíunni í Kópavogi og átti að hefja störf tveimur dögum eftir slysið á snyrtistofunni Gyðjunni. En það verður bið á því að þessi 21 árs stúlka geti byrjað að vinna.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×