Erlent

Hanaslagur verður loks bannaður

Louisiana verður síðasta ríkið í Bandaríkjunum til þess að banna hanaslagi. Ríkisþingið samþykkti í gærkvöldi frumvarp um að banna slagsmálin frá og með ágústmánuði árið 2008. Þá verður bannað að veðja á úrslit í henni frá og með samþykkt laganna.

Dýraverndunarsinnar hafa barist lengi fyrir því að banna hina blóðugu íþrótt en í henni eru hanar þjálfaðir til þess að berjast til dauða. Fylgjendum hennar tókst þó að koma í veg fyrir bann með því að segja íþróttina menningarlega arfleið sveitanna í Louisiana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×