Erlent

Missti hluta fótanna í skemmtigarði í Nashville

Aron Örn Þórarinsson skrifar
NordicPhotos/GettyImages

Líðan 13 ára stúlku sem missti hluta af báðum fótum sínum í síðustu viku er stöðug. Kaitlyn Lasitter var í leiktæki í skemmtigarði í Nashville þegar vír úr tækinu slitnaði og hjó lappinar af henni fyrir ofan ökla.

Tækið hefur verið lokað síðan slysið varð og er undir rannsókn lögreglu. Foreldrar Lasitter gáfu frá sér yfirlýsingu í dag þar sem þau þökkuðu öllum sem höfðu sent þeim kveðju og hlýjar hugsanir. Í yfirlýsingunni kom einnig fram að enginn úr skemmtigarðinum hafði haft samband við þau eftir slysið.

Talsmaður skemmtigarðsisns segir þó að tveir starfsmenn garðsins hefðu farið strax að heimsækja Lasitter á sjúkrahúsið og dvalið þar í smástund áður en foreldrar hennar báðu þá um að fara.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×