Erlent

Fjárfestu í hátísku

Myndir þú sleppa því að kaupa þér nýju jakkafötin eða kjólinn og kaupa þér frekar hlutabréf í merkinu sjálfu?
Myndir þú sleppa því að kaupa þér nýju jakkafötin eða kjólinn og kaupa þér frekar hlutabréf í merkinu sjálfu? MYND/AFP

Fjármálafyrirtæki víða um heim eru nú farin að fylgja eftir merkjaþrá almennings og búa til hlutabréfasjóði með einungis hátískufyrirtækjum. Fólk getur þá keypt hlutabréf í Miu Miu, Stellu McCartney eða Ralph Lauren.

Fyrirtækin sem bjóða upp á þjónustuna segja að vöxtur sé töluverður í lúxusvörum og að hann eigi aðeins eftir að aukast á næstu árum. Þá benda þeir á að hátískuvörur séu sífellt að verða aðgengilegri fyrir almenning.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×