Erlent

ESA leitar að sjálfboðaliðum í sýndargeimferð

Jónas Haraldsson skrifar
Hver veit nema þú gætir orðið einn af geimförum ESA í framtíðinni?
Hver veit nema þú gætir orðið einn af geimförum ESA í framtíðinni? MYND/AFP
Evrópska geimferðastofnunin er að leita að sjálfboðaliðum til þess að taka þátt í sýndarferð til Mars. Í tilrauninni munu sex manns eyða 17 mánuðum lokuð inni í stórum einangrunarklefa.

Fólkið mun vinna og starfa í rými sem samanstendur af nokkrum einingum sem fastar eru saman. Þegar öryggislúgunum verður lokað getur fólkið aðeins haft samskipti við umheiminn í gegnum talstöð sem mun hafa 40 mínútna seinkun á merkinu, til þess að líkja eftir raunverulegum aðstæðum.

Geimfarið verður um 550 rúmmetrar að stærð og verður til staðar í rússneskri rannsóknarstöð í Moskvu. Markmið tilraunarinnar er að fá hugmynd um hegðun fólks undir álagi sem líkist því sem geimfararnir eiga eftir að upplifa. Það eina sem þeir upplifa ekki er þyngdarleysi og geimgeislun.

Vistir verða takmarkaðar, vinna verður mikil, einkalíf verður nær ekkert og fólkið mun þurfa að búa við þröngar aðstæður. Sýndargeimfararnir verða látnir gangast undir margs konar prófanir. Þar á meðal verður sýndargeimskot, 250 daga geimferðalag til Mars, Marsganga og síðan heimferðin. ESA hefur sagt að þeir ætli sér ekki að stofna lífi neins í hættu en að ansi góða ástæðu muni þurfa til þess að hleypa fólkinu út úr geimfarinu.

Væntanlegir umsækjendur verða að vera á bilinu 25 til 50 ára, við góða heilsu, mjög framtakssamir og hressir og ekki hærri en 185 sentímetrar. Reykingafólk, eða fólk sem glímir við annars konar fíkn, fær ekki aðgöngu. Einnig verða viðkomandi að geta talað rússnesku og ensku.

Þeir heppnu munu síðan fá 185 dollara á dag þá 500 daga sem ferðin mun standa yfir, eða um 290 þúsund íslenskar krónur á mánuði.

Hægt er að nálgast umsóknareyðublöð hérna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×