Fótbolti

Reyes grátbiður um að fá að vera áfram í Madrid

NordicPhotos/GettyImages

Spænski landsliðsmaðurinn Jose Antonio Reyes hefur nú enn á ný farið þess á leit við forráðamenn Real Madrid að þeir geri lánssamning hans að varanlegum samningi. Reyes var á lánssamningi hjá spænsku meisturunum í vetur frá Arsenal á Englandi, en vill alls ekki snúa aftur til Englands. Hann gegndi lykilhlutverki í leik liðsins um helgina þar sem það tryggði sér meistaratitilinn.

Reyes kom inn af bekknum og skoraði tvö mörk þegar Real sigraði Mallorca á sunnudaginn. "Ég vona að þetta hafi ekki verið síðustu mörk mín fyrir Real. Kannski verður þetta nóg til að sannfæra forráðamenn Real um að halda mér hérna áfram. Ég hef oft sagt það hve mikill heiður það er fyrir mig að spila fyrir þetta félag og ég kom hingað til að hjálpa liðinu til að verða meistari á ný," sagði Reyes í samtali við Daily Mirror.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×