Erlent

Sjö börn láta lífið í loftárás í Afganistan

Að minnsta kosti sjö börn létu lífið í loftárásum bandaríska hersins á trúarskóla í þorpi í Afganistan í nótt. Aukin óánægja er með loftárásir sem þessar en fjöldi almennra borgara sem lætur lífið í þeim eykst stöðugt.

Loftárásin var gerð þar sem herinn taldi að vígamenn al-Kaída hefðust við í skólabyggingunni. Fleiri en 120 almennir borgarar hafa látið lífið í árásum erlendra herja í Afganistan undanfarna mánuði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×