Erlent

Var tæpar 16 mínútur í kafi

Sigríður Guðlaugsdóttir skrifar

Sjónhverfingamenn í Litháen reyndu í gær að hnekkja heimsmeti í því að vera í kafi án öndunarbúnaðar. Mikil spenna var í áhorfendum þegar systkynin Arvydas og Díana Gaiciunas voru vafin í keðjur fyrir tilraunina. Met Díönu var 11 mínútur og sjö sekúntur, en Arvydas tókst að halda niði í sér andanum í heilar 15 mínútur og 58 sekúndur.

Ekki er ljóst hvort heimsmetabók Guinness tekur metið gilt, en fyrra met karla í bókinni var 13 mínútur 42 sekúndur.

Systkynin voru færð til rannsóknar á sjúkrahús eftir tilraunina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×