Erlent

Sjómenn enn í haldi sjóræningja

Guðjón Helgason skrifar

5 danskir sjómenn sem sem sjóræningjar tóku höndum fyrir 12 dögum undan strönd Sómalíu eru enn í haldi ræningjanna og óvíst hvenær þeir fá frelsi. Sjómennirnir voru á ferð með flutningaskipinu Danica White þegar sjóræningarnir réðust um borð. Skipið liggur við akkeri utan við hafnarbæinn Hobyo.

Ekki er vitað hvort sjómennirnir eru í haldi um borð eða í landi. Lausnargjalds hefur verið krafist en útgerð skipsins ekki gefið hvað hún er há. Athygli vekur að sómölsk stjórnvöld hafi ekki gripið til aðgerða þó vitað sé um skipið. Óöld og upplausn sé hins vegar í landinu og yfirvöld megi sín lítils gegn ribböldum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×