Erlent

Hamas-liðar með Gaza-svæðið á sínu valdi

Guðjón Helgason skrifar
Liðsmenn Hamas á Gaza fagna sigri.
Liðsmenn Hamas á Gaza fagna sigri. MYND/AP

Hamas-liðar hafa lagt allt Gaza-svæðið undir sig eftir blóðuga, vikulanga baráttu við liðsmenn Fatah-hreyfingar Abbas, forseta Palestínumanna. Forsetahöllin í Gaza-borg var hertekin í nótt. Ró hefur að mestu færst yfir svæðið í morgun þó loftið sé enn lævi blandið.

Talið er að um 100 Palestínumenn hafi fallið í átökum síðustu viku á Gaza-svæðinu. Hart var barist í gær og þegar kvöldaði fór líkt og margir spáðu og aðrir hvöttu til. Abbas, forseti, leysti upp þriggja mánaða gamla þjóðstjórn Fatah og Hamas og lýsti yfir neyðarástandi á Gaza-svæðinu og Vesturbakkanum. Búist er við að hann skipi bráðabirgðastjórn í dag og boði síðan til kosninga þegar hægist um. Ismail Haniyeh, forsætisráðherra og forvígismaður Hamas, er þó ekki á því að víkja og segir stjórn sína starfa áfram. Lög verði sett til að binda enda á átökin.

Óvíst er því hvernig málin þróast. Forsetinn hefur enn töglin og haldirnar á Vesturbakkanum en töluvert hefur fjarað undan valdi hans á Gaza. Það virðist því sem spár stjórnmálaskýrenda meðal Palestínumanna séu að rætast - að Vesturbakkinn verði landsvæði Fatah og Gaza undir stjórn Hamas - skýr klofningur hjá Palestínumönnum. Haniyeh segir þetta ómögulegt, Gaza sé órjúfanlegur hluti föðurlandsins.

Hamas-liðar lýstu því yfir í morgun að þeir hefðu lagt undir sig forsetahöllina á Gaza í nótt en í gær náður þeir á sitt vald nokkrum helstu landsvæðum Fatah á Gaza. Fjölmargir liðsmenn Fatah, sumir háttsettir, voru teknir höndum í gær og óvíst um afdrif þeirra. Hamas liðar hafa þó lofað að frelsa fjölmarga háttsetta Fatah menn og það verði liður í almennri sakaruppgjöf.

Almennum borgurum á Gaza-svæðinu virtist nóg boðið í morgun og gengu fjölmargir úr báðum fylkingum að ræðismannsskrifstofu Egypta í Gaza-borg í morgun þar sem þeir hvöttu fylkingarnar tila ð leggja niður vopn og friðmælast. Hamas-liðar skutu á mótmælendurna þar sem þeir gengu að fundarstaðnum og særðust fimmtán úr þeirra hópi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×