Erlent

Oprah Winfrey áhrifamesta fræga persónan

Oprah Winfrey er áhrifamesta fræga persóna í heimi samkvæmt lista viðskiptatímaritsins Forbes. Kylfingurinn Tiger Woods lenti í öðru sæti og söngkonan Madonna lenti í því þriðja. Listinn hjá Forbes tekur tillit til tekna og hversu mikið efni er að finna um þær á internetinu og í fjölmiðlum. Á síðasta ári sat Tom Cruise á toppi listans.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×