Erlent

Hugo Chavez heimsækir Fidel Castro

Aron Örn Þórarinsson skrifar
AFP

Hugo Chavez, forseti Venesúela, er nú í óvæntri heimsókn í Kúbu. Hann er þar að heimsækja forseta Kúbu, Fidel Castro. Þetta er í sjötta skiptið sem að Chavez heimsækir Castro síðan sá síðarnefndi fór í aðgerð í júlí.

Aðeins eru fimm dagar liðnir síðan forseti Bólivíu, Evo Morales, heimsótti Castro óformlega. Morales sagði að Castro væri á góðum batavegi, en Castro hefur ekki látið sjá sig á almannafæri síðan hann gekkst undir aðgerðina. Raul Castro hefur sinnt forsetaembættinu í fjarveru eldri bróður síns.

Varaforseti Kúbu og utanríkisráðherra tóku á móti Chavez á flugvellinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×