Erlent

130 japanar í sóttkví í Kanada

Óli Tynes skrifar
Frá Banff.
Frá Banff.

Um 130 japanskir ferðamenn hafa verið settir í sóttkví í fjallahóteli í Banff í Kanada, af ótta við að þeir séu smitaðir af mislingum. Japanarnir eru flestir skólabörn. Kona í hópnum var veik við komuna til Kanada síðastliðinn fimmtudag.

Hún var lögð inn á sjúkrahús og kom í ljós að hún var með mislinga. Því var hópurinn kyrrsettur í Banff. Blóðprufur verða teknar af fólkinu í dag. Mislingar geta valdið bæði heilabólgu og lungnabólgu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×