Erlent

Krókódílum komið burt

Íbúum Miami Lakes í Flórída brá nokkuð í brún þegar þeir tóku eftir því að tveir krókódílar höfðu hreiðrað um sig í skurði í bænum. Starfsmenn áhaldahúss bæjarins voru kallaðir til og höfðu þeir hröð tök við að handsama þessar háskalegu skepnur. Þykkum vír var brugðið utan um skoltinn á þeim svo þær gætu ekki læst þeim í viðstadda. Krókódílunum var svo komið fyrir í bíl og ekið á fenjasvæði sem er umtalsvert lengra frá mannabyggðum. Íbúar Miami Lakes voru að vonum fegnir og eflaust krókódílarnir yfir að fá að vera í friði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×