Innlent

Fermingarbörn mögulegir hryðjuverkamenn

Kona sem hugðist gefa fermingarbarni fimmþúsund króna inneign á lokaðri bankabók var krafin svara um þjóðerni, hjúskaparstöðu og uppruna fimmþúsundkrónanna í Sparisjóðnum.

Íslensk kona um sextugt fór í vikunni og hugðist stofna lokaðan bankareikning og leggja inn á hann fimm þúsund krónur handa fermingarbarni eftir að hafa séð auglýsingu frá Sparisjóðnum um fermingargjöfina sem vex. Þegar konan mætti í Sparisjóð Kópavogs var henni afhent þetta eyðublað vegna laga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Til að fá að leggja inn þessar fimmþúsund krónur þurfti konan sem sé að framvísa skilríkjum, svara spurningum um þjóðerni, hjúskaparstöðu, barnafjöld á framfæri, hvar hún greiddi skatta, tilgang viðskiptanna - og um uppruna fjármagnsins, svo sitthvað sé nefnt af þeim upplýsingum sem bankinn krafðist.

Þegar konan lýsti því yfir að henni þætti heldur fáránlegt að þurfa að sanna að hún væri ekki hryðjuverkamaður til að gefa fermingargjöf, sagði starfsmaðurinn að svona væru reglurnar. Svona lágt leggst ég nú ekki, sagði konan þá og gekk út.

Þess má geta að viðkomandi bankareikningur - sem bankinn þarf lögum samkvæmt að varna að verði notaður til peningaþvættis eða til fjármögnunar hryðjuverka - er bundinn til fjögurra ára og fermingarbörnin geta ekki tekið út af honum fyrr en við 18 ára aldur.

Áðurnefnd voru sett um mitt síðasta ár samkvæmt tilskipun frá Evrópusambandinu. Þar er bönkum og fleiri stofnunum gert skylt að kanna áreiðanleika viðskiptamanna meðal annars við upphaf viðvarandi samningssambands og þegar grunur leikur á um peningaþvætti eða fjármögnun hryðjuverka. Svo virðist sem það geti átt við um fermingargjöf.

 

 

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×