Innlent

Staða Íbúðalánasjóðs óljós

Ekkert er fast í hendi með flutning Íbúðalánasjóðs til fjármálaráðuneytisins. Guðni Ágústsson formaður Framsóknarflokksins hélt því fram í gær að fjármálaráðuneytið yrði líknardeild fyrir sjóðinn og ríkisstjórnarflokkarnir nýju væru orðnir sammála um að selja hann.

Þing kemur saman í næstu viku og talað um að þrjú mál verði á dagskrá, sem lúti að málefnum aldraðra, barna með geðraskanir og uppstokkun á ráðuneytum.

Sagt hefur verið frá verkefnaflutningi milli ráðuneyta en hann mun þó ekki hafa verið kynntur formlega í þingflokkunum. Meðal annars hefur því verið haldið fram að forræði Íbúðalánasjóðs færist til fjármálaráðuneytis. Samkvæmt heimildum fréttastofu er þetta ekki rétt. Flutningur ákveðinna verkefna sé frágenginn en annað á umræðustigi. Þar sé flutningur Íbúðalánasjóðs frá Félagsmálaráðuneyti til Fjármálaráðuneytis styst á veg kominn. Slíkur flutningur er ekki líklegur til að renna ljúflega fyrir sig - allra síst hjá nýbökuðum félagsmálaráðherra, Jóhönnu Sigurðardóttur sem sagði í mars í fyrra að með því að sitja á eðlilegum breytingum á Íbúðalánasjóði hefðu stjórnvöld meðvitað reynt að svelta sjóðinn af markaði. Harðar deilur voru á þessum tíma um hugmynd Sjálfstæðismanna að gera Íbúðalánasjóð að heildsölubanka. Jóhanna sakaði forsætisráðherra um að vilja jarða sjóðinn svo bankarnir gætu setið einir um hituna.

Í fréttaröð Stöðvar 2 um málefnin í kosningabaráttunni voru allir flokkarnir spurðir um afstöðu sína til Íbúðalánasjóðs. Spurt var: Á Íbúðalánasjóður að starfa í óbreyttri mynd?

Orðrétt svaraði Samfylking:

Samfylkingin telur að það eigi að standa vörð um Íbúðalánasjóð til að tryggja samkeppni á íbúðalánamarkaði og jafnan aðgang landsmanna að íbúðarlánum.

Sjálfstæðisflokkurinn sagðist hins vegar vilja:

.. jafna samkeppnisstöðu á húsnæðislánamarkaði og skoða þar sérstaklega stöðu Íbúðalánasjóðs og hlutverk hans á almennum lánamarkaði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×