Erlent

Kærastan farin frá Wolfowitz

Óli Tynes skrifar
Shaha Riza
Shaha Riza MYND/Alþjóðabankinn.

Maí var ekki góður mánuður fyrir Paul Wolfowitz, bankastjóra Alþjóðabankans. Fyrst missti hann vinnuna fyrir að hygla kærustu sinni. Og hann var ekki fyrr búinn að missa vinnuna en kærastan fór frá honum. Bandaríska dagblaðið New York Post segir að Shaha Riza hafi sagt bankastjóranum fyrrverandi upp.

Wolfowitz var vandi á höndum þegar hann tók við stöðu bankastjórans fyrir tveim árum. Samkvæmt siðareglum bankans mega stjórnendur hans ekki vera yfirmenn ættingja sinna eða ástkvenna. Þau Riza voru þá þegar í sambandi og lögfræðingar bankans sögðu að hún yrði að finna sér annað starf.

Riza er sögð ljóngáfuð. Rosalega skapmikil og mikill feministi. Hún varð öskureið yfir að þurfa að ganga úr góðu starfi sínu vegna þess að ákveðinn karlmaður var settur yfir hana. Wolfowitz mun hafa sagt bankans mönnum að hann þyrði ekki að reka hana í annað starf.

Því var útbúinn pakki sem færði hana yfir í bandaríska utanríkisráðuneytið. Með höfðinglegri launahækkun. Það varð Wolfowitz að falli. Siðanefnd bankans komst að þeirri niðurstöðu að of vel hefði verið gert við hana.

Í frétt New York Post sýnast bæði Wolfowitz og Riza fórnarlömb aðstæðna. Hann reyndi að fara réttu leiðina í gegnum siðanefnd bankans. Því er haldið fram að fortíð hans og þá sérstaklega aðild hans að innrásinni í Írak, hafi verið hluti af ástæðunni fyrir því að blásið var til svo mikillar sóknar gegn honum.

Heimildarmenn blaðsins segja að þetta hafi verið mjög sársaukafullt fyrir Rizu. Hún bað ekki um að vera flutt. Hún bað ekki um kauphækkun og hún elskaði gamla starfið sitt hjá Alþjóðabankanum. Og hún er öskureið yfir að hafa enn og aftur verið niðurlægð vegna sambands síns við valdamikinn karlmann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×