Erlent

Öflug sprenging í Ankara

Guðjón Helgason skrifar

Að minnsta kosti 4 týndu lífi og rúmlega 60 særðust þegar sprengja sprakk á háannatíma við verslunarmiðstöð í Ankara, höfuðborg Tyrklands, nú síðdegis.

Erdogan forsætisráðherra segir hryðjuverk sem verði refsað fyrir. Engin samtök hafa lýst illvirkinu á hendur sér.

Loftið hefur verið lævi blandið í Tyrklandi síðustu vikur vegna deilna um val þings á nýjum forseta. Tekist hefur verið hart á um aðskilnað ríkis og trúarbragða í landinu en óvíst að það tengist árásinni í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×