Innlent

Tekið á sýndarmennsku á Glerárgötu

Á Akureyri hefur borið á því að undanförnu að menn séu að sperra sig á Glerárgötunni og því ákvað lögreglan á staðnum að vakta götuna og sjá hvort hægt væri að stoppa þetta háttarlag. Það bar árangur því níu ökumenn voru teknir fyrir hraðakstur þar í gærkveldi og nótt. Sá ókumaður sem fór hraðast yfir þar í bæ í gærkvöldi mældist á 103 kílómetra hraða en á Glerárgötu er hámarkshraði 50 kílómetrar á klukkustund.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×