Erlent

Einn lést og fjórir særðust

Einn lést og fjórir særðust í loftárásum Ísraelshers á Gaza svæðið í dag. Talsmenn sjúkrahúsa á svæðinu skýrðu frá þessu í dag. Þeir sögðu að sá sem hefði látið lífið hefði verið óbreyttur borgari á unglingsaldri. Ísraelski herinn hefur ekki svarað þessum staðhæfingum.

Ísraelski herinn hefur gert að minnsta kosti þrjár loftárásir á Gaza svæðinu í dag. Eina á hús sem Hamas hafði aðstöðu í og hinar tvær voru á bíla sem háttsettir embættismenn Hamas voru í. Hamas samtökin voru ekki lengi að bregðast við og sendu frá sér yfirlýsingu þar sem fram kom að allt væri nú opið og að sjálfsmorðsárásir væru möguleiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×