Erlent

Dagar Wolfowitz sagðir taldir

Paul Wolfowitz hefur um margt að hugsa þessa dagana.
Paul Wolfowitz hefur um margt að hugsa þessa dagana. MYND/AP

Enn einn fundurinn verður haldinn í stjórn Alþjóðabankans í dag um örlög bankastjórans Pauls Wolfowitz. Hann hefur legið undir miklu ámæli fyrir að hafa hyglað ástkonu sinni sem starfar við bankann en Bandaríkjastjórn hefur engu að síður haldið yfir honum hlífiskildi. Í yfirlýsingu frá lögmanni Wolfowitz í gær segir að stjórnin verði að greiða atkvæði um málið ætli hún að reka hann. Hann er nú sagður reyna að semja um starfslok sín við bankann, meðal annars með því að fá stjórnina til að taka á sig einhvern hluta sektarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×