Erlent

Þriðja vopnahléið á Gaza rofið

Vígamenn á Gaza svæðinu drápu að minnsta kosti fjóra í árás á heimili embættismanns Fatah hreyfingarinnar í nótt. Árásin batt enda á þriðja vopnahléið á jafnmörgum dögum en hún átti sér stað nokkrum klukkustundum eftir að vopnihléi var lýst yfir. Stuttu áður var sprengju varpað á skrifstofu Forseta Palestínu, Mahmoud Abbas. Þá var einnig ráðist á lögreglustöð Hamas hreyfingunnar.

Fréttamaður BBC á Vesturbakkanum sagði að nú væru fylkingarnar tvær að heyja hefndarstríð gegn hvor annari. Skólar og verslanir hafa lokað og flestir íbúar halda sig innan dyra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×