Innlent

Erfitt að finna fullkomna úthlutunarleið

Guðjón Helgason skrifar

Samfylkingin fær tveimur fleiri þingmenn en Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavíkurkjördæmi norður enda þótt fylgi hennar þar sé rúmum sjö prósentum minna en Sjálfstæðisflokks. Jafnmikið fylgi Samfylkingar í Reykjavík suður skilar tveimur færri þingmönnum. Einn höfunda kosningakerfisins segir erfitt að finna fullkomna leið til að úthluta þingsætum.

Í Reykjavíkurkjördæmi norður fékk Samfylkinginn fimm þingmenn með rétt rúmleg 29% fylgi en aðeins þrjá í Reykjavíkur kjördæmi suður með nærri því jafn mikið fylgi. Á sama tíma fengu Sjálfstæðismenn fjóra þingmenn í Reykjavík norður með rúmlega 7% meira fylgi en Samfylkingin.

Þorkell Helgason, stærðfræðingur og ráðgjafi landskjörstjórnar, er einn aðalhöfunda kosningakerfisins sem tekið var í gagnið 2003. Hann segir að samkvæmt lögum sé sætum úthlutað samkvæmt landsfylgi og því hver mörg þingsæti eigi að vera í hverju kjördæmi. Fullkomin leið við úthlutun sé ekki til. Kosningalögin hafi virkað vel og farið nærri svokallaðri bestu lausn 2003 en nú virðist um eitthvað frávik að ræða. Hann eigi þó eftir að skoða úrslitin betur fyrir landskjörstjórn.

Til að útskýra vandamálið betur segir Þorkell að auðveldast sé að setja sem svo að búið sé að úthluta 62 þingsætum af 63 með einhverjum hætti. Þá sé eitt sæti eftir og í raun bara einn bás fyrir það. Einn flokkur eigi þá eftir að fá sína réttu tölu þingsæta og eitt kjördæmi þar sem vanti þingmann. Þá verði að senda sætið í þann reit hvað svo sem fylgi viðkomandi lista sé. Jafnvel þó þingmaður væri ekki með nema eitt atkvæði á bak við sig þá yðri að úthluta honum þingsætinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×