Erlent

Skilaboð frá Bandaríkjunum

Eva Bergþóra Guðbergsdóttir skrifar

Fréttamenn í dag glíma við tímaleysi, eigin tilfinningar og misvitra heimildarmenn. Þetta sögðu Dan Rather og Bob Woodward, tvær helstu stjörnur bandarískrar frétta- og blaðamennsku, þegar þeir ræddu við unga blaðamenn í Monteray í Kaliforníu nýlega.

Woodward, sem fyrstur varð frægur þegar hann fletti ofan af Watergate-málinu fyrir Washington Post, og Rather er reynslubolti úr heimi bandarískra sjónvarpsfrétta. Þeir voru báðir tilbúnir að samþykkja ákveðin mistök blaðamanna í aðdraganda Íraksstríðsins. Woodward sagði að einna helst fælust þau í því að ekki hefði vrið nægilega rætt um hvað það væri í raun mikið mál fyrir þjóð að fara í stríð. Rather tók undir að þjóðarandinn í kjölfar hryðjuverkanna 11. september 2001 hefði haft áhrif. Rather segir þó ekki eingöngu duga að horfa á blaðamenn, aðgangshörð blaðamennska þrífist bara með stuðningi almennings.

Woodward virtist taka því persónulega þegar talið barst að þeim sem gagnrýndu blaðamenn í dag fyrir gagnrýnislausa umfjöllun um stríðið í Írak. Hann sagði umfjöllun mikla. Í blaði hans, Washington Post, heðfi á dögunum verið umfjöllun um verkefni írösku ríkisstjórnarinnar. Það sem Nouri al-Maliki, forsætisráðherra, þurfi að leysa sé meðal annars olíudreifing og gerð stjórnarskárs, svo eitthvað sé nefnt og það sé langt frá því leyst.

Þessar goðsagnir nútíma blaðamennsku segja mikilvægt að halda ákveðinni fjarlægð frá umfjöllunarefninu. Rather segir í Washington hafi sumir fjölmiðlamenn fallið í þá gryfju að vingast um of við heimildarmenn og sumir þurft að greiða mikið óeiginlegt gjald fyrir aðgang að heimildum.

Þegar rætt er um hver stærsta ógnin við lýðræðinu sé segir Woodward svarið einfalt. Það sem skaði lýðræðið sé ríkisstjórn sveipuð skugga. Sá sem hafi sagt að lýðræðið deyji í myrkrinu hafi haft rétt fyrir sér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×