Erlent

Umdeildur verðandi forseti

Guðjón Helgason skrifar

Nicolas Sarkozy, nýr forseti Frakklands, er umdeildur og veit af því. Hann er þekktur fyrir harða afstöðu í innflytjendamálum og hefur viðrað þá skoðun að genasamsetning geti ráðið glæpahneigð fólks. Stjórnmálaskýrendur í Frakklandi segja áhugaverða tíma í vændum í frönskum stjórnmálum eftir úrslit forsetakosninganna í gær.

Sarkozy er 52 ára. Faðir hans flutti til Frakklands frá Ungverjalandi en móðir hans er frönsk af grískum gyðingaættum. Sarkozy og tveir bræður hans voru aldir upp í róversk kaþólskri trú. Sarkozy er lögfræðingur að mennt.

22 ára var hann kosinn í bæjarráð í Neuilly sur Seine þar sem varð síðar yngsti bæjarstjóri í sögu Frakklands. 1993 til 1995 var hann fjármálaráðherra í ríkisstjórn Édouards Balladurs. Sarkozy var snemma á ferlinum sagður undir verndarvæng Jacques Chiracs. Árið 1995 sneri hann hins vegar baki við lærimeistara sinn og studdi Balladur í forsetakosningunum það ár. Chirac náði kjöri og þá var Sarkozy úti í kuldanum. Chirac lokaði þó ekki alveg á hann og skipaði hann innanríkisráðherra 2002 í ríkisstjórn Jean-Pierre Raffarains. Tveimur árum síðar varð hann fjármálaráðherra og loks innanríkisráðherra aftur.

Sarkozy er ekki allra eins og ljóst var þegar til átaka kom í sumum borgum Frakklands í nótt vegna úrslitanna í gær.

Sarkozy varkti reiði margra með framgöngu sinni þegar til óeirða kom í Frakklandi fyrir um tveimur árum. Sagði hann mótmælendur skríl og uppskar skammir fyrir. Hann er þekktur fyrir harða afstöðu í innflytjendamálum þrátt fyrir uppruna sinn, og vill minnka aðskilnað ríkis og trúarbragða í Frakklandi. Hann vill að ríkið komi að uppbyggingu guðshúsa - meðal annars á moskum. Sarkozy var andvígur Íraksstríðinu en gagnrýndi Chirac og utanríkisráðherrann Dominique de Villepin fyrir það hvernig þeir tjáðu andstöðu sína. Sarkozy hefur einnig viðrað þá skoðun sína að genasamsetning ráði glæpahneygð fólks.

Af þessu má sjá að nýr forseti Frakklands er umdeildur og bíða áhugamenn um frönsk þjóðmál spenntir eftir því að hann taki við völdum í Elysée-höll 16. maí næstkomandi. Þá hefjist áhugavert tímabil í frönskum stjórnmálum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×