Erlent

Ferfætta brúðurin fallin frá

Óli Tynes skrifar
Það ríkir sorg á heimili Rósu.
Það ríkir sorg á heimili Rósu.

Frægasta geit Súdans hefur safnast til feðra sinna. Hún hét Rósa. Rósa varð fræg fyrir það að maður að nafni Charles Tombe var neyddur til að kvænast henni. Tombe var gripinn þar sem hann var í áköfum samförum við Rósu. Svo áköfum að eigandi hennar vaknaði af værum blundi og stóð hann að verki. BBC fréttastofan sagði fyrst frá þessu á síðasta ári. Af einhverjum ástæðum fór þessi saga annan hring í kring um heiminn í síðustu viku.

Þegar geitasagan fór aftur að skjóta upp kollinum (hornunum ?) sem mest lesna fréttin á fréttavef BBC urðu menn þar undrandi. Fréttin hafði ekki verið endurbirt eða endurskrifuð. Og hundrað þúsund lesendur á dag voru að smella á hana. Málið var því kannað og það kom í ljós að fréttin hafði eignast sitt eigið líf.

Einhver lesandi hafði lesið fréttina, haldið að hún væri ný og sent hana til vina sinna. Sem sendu hana til vina sinna. Sem sendu hana......þið skiljið. Og allir skelltu sér á fréttavef BBC til þess að frétta meira.

Allt þetta umstang varð til þess að BBC þótti rétt að fylgja fréttinni eftir. Athuga til dæmis hvort hjónabandið hefði enst. Fréttaritarar BBC í Afríku voru ræstir út til þess að hafa upp á hjónunum. Það kom í ljós að það hafði orðið sorgaratburður á heimilinu. Brúðurin var látin. Talið er að banamein hennar hafi verið stór plastpoki sem hún gleypti þegar hún sat að kvöldverði á ruslahaug í borginni Júba, sem er höfuðborg Suður-Súdans.

Eiginmaðurinn Charles Tombe var hinsvegar við góða heilsu. Og einnig kiðlingurinn sem Rósa eignaðist áður en hún féll frá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×