Erlent

Traktor keyrði tvisvar yfir ungling

MYND/Getty Images

Traktor keyrði í tvígang yfir austurrískan ungling –  fyrst eftir að hann datt af og svo aftur þegar ökumaðurinn bakkaði til að athuga hvar pilturinn væri. Hinn 17 ára Hubert Hochstetter datt af traktornum þegar Josef Mittringer 22 ára félagi hans keyrði hann eftir vegi við þorpið Kainisch í Austurríki. Hann hafnaði undir afturhjólum traktorsins sem vegur um þrjú tonn.

Hann handleggs- og rifbeinsbrotnaði við atvikið. Þegar ökumaðurinn bakkaði síðan yfir Hubert, fótbrotnaði hann á báðum fótum.

Josef varð svo skelfingu lostinn þegar hann áttaði sig á því sem hann hafði gert, að hann keyrði í burtu.

Vitni hringdu á sjúkrabíl og unglingurinn var færður undir læknishendur. Að sögn fréttavefs Ananova verður drengurinn á sjúkrahúsi næstu vikur, en búist er við að hann nái fullum bata.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×