Erlent

Sendum Harry eyrnalausan heim til ömmu

Harry prins.
Harry prins.

Hryðjuverkasamtökin Al-Kæda hafa sett 30 milljónir króna til höfuðs Harry bretaprins. Harry verður sendur til Íraks ásamt herdeild sinni, í þessum mánuði. Í fjölmiðlum er því haldið fram að fjölmargir hópar uppreisnarmanna í Írak muni reyna að helst ræna prinsinum, eða myrða hann ella.

Abu Zaid, talsmaður eins þessara hópa sagði í samtali við norska Aftonblaðsins að þeir myndu sýna af sér höfðingsskap, þeir muni senda Harry heim til ömmu sinnar með afskorin eyru. Harry er liðsforingi í breska hernum og hefur undir sinni stjórn þrjá brynvarða eftirlitsvagna og tólf hermenn.

Margir foringjar í breska hernum hafa lýst þeirri skoðun sinni að óvarlegt sé að senda prinsinn til Íraks, þar sem það muni bjóða hættunni heim fyrir félaga hans. Prinsinn hefur hinsvegar sagt að hann hafi ekki gengið í gegnum hina ströngu þjálfun í Sandhurst herskólanum til þess að sitja heima meðan félagar hans væru sendir í stríð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×