Erlent

Óttast heittrúaðan forseta

Guðjón Helgason skrifar

Mörg hundruð þúsund Tyrkir tóku komu saman í miðborg Istanbúls í dag til að sýna stuðning við veraldlega stjórnarhætti í landinu. Margir Tyrkir óttast að heittrúaður múslimi verði valinn forseti og vilja allt gera til að koma í veg fyrir það.

Fjölmenni var í miðborg Istanbúl í dag. Vildu þeir sem þar voru komnir leggja áherslu á mikilvægi þess að stjórnmálum yrði haldið frá trúarbrögðum og trúmálum.

Forsetinn er sameiningartákn tyrknesku þjóðarinnar en að mestu valdalítill. Hann getur þó neitað að samþykkja lög og vísað þeim til þjóðarinnar. Hann skipar dómara og ýmsa háttsetta embættismenn og er æðsti yfirmaður tyrkneska hersins.

Þingið velur forseta. Aðeins má gegna embættinu í eitt kjörtímabil sem er sjö ár.

Frambjóðandi þarf tvo þriðju atkvæða til að hreppa hnossið en gangi það ekki eftir þegar kosið hefur verið tvisvar þarf aðeins einfaldan meirihluta í þriðju atkvæðagreiðslu. Gangi það ekki eftir þarf að kjósa í fjórða sinn og ef enn fæst ekki niðurstaða þarf að boða til þingkosninga.

Hinn umdeildi Abdullah Gul, untanríkisráðherra, er frambjóðandi stjórnarflokks Erdogans forsætisráðherra en flokkurinn höfðar mjög til trúrækina múslima í Tyrklandi. Stjórnmálaskýrendur segja Gul í sterkum tengslum við trú sína og benda á að ef hann verði fyrir valinu verði kona hans fyrsta forsetafrú Tyrklands til að ganga með hefðbundna slæðu múslimakvenna.

Gul var nærri því að fá tilskilin fjölda atkvæða á föstudaginn og aftur verður kosið eftir helgi. Stjórnarandstaðan tók ekki þátt í atkvæðagreiðslunni og vill að þegar verði boðað til þingkosninga. Stjórnlagadómstóll er með þá kröfu til meðferðar og tekur afstöðu í vikunni. Forvígismenn atvinnulífsins í Tyrklandi tóku í dag undir kröfu stjórnarandstöðunnar og vilja nýjar kosningar. Óttinn meðal þeirra og annarra Tyrkja er að herinn grípi í taumana til að koma í veg fyrir að veraldlegt stjórnkerfi landsins blandist trúarbrögðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×