Erlent

Tyrkneski herinn haldi að sér höndum

Guðjón Helgason skrifar

Bandaríkjamenn og Evrópusambandið hvetja tyrkneska herinn til að halda að sér höndum nú þegar þing Tyrklands velur næsta forseta landsins. Svo gæti farið að íslamskur forseti verði fyrir valinu og hefur herinn hótað að grípa í taumana til að vernda sjálfstæði stjórnvalda gagnvart trúarbrögðum.

Abdullah Gul, utanríkisráðherra, er forsetaefni stjórnarflokks Tayyips Erdogans, forsætisráðherra, en flokkurinn er afar tengdur Íslam og höfðar mjög til trúrækina múslima. Það er þingið sem greiðir atkvæði um forsetaefni og munaði litlu að Gul fengi tilskiln fjölda atkvæða, tvo þriðju, í fyrstu umferð í gær. Þurfi að kjósa í þriðja sinn dugir einfaldur meirihluti og líklegt talið að Gul verði þá valinn forseti. Stjórnarandstaðan tók ekki þátt í atkvæðagreiðslunni í gær.

Á vefsíðu hersins í gærkvöldi var birt yfirlýsing þar sem sagði að herinn fylgdist gaumgæfilega með valinu og væri tilbúinn til að taka virkan þátt í ferlinu eins og það er orðað. Tyrkneski herinn hefur fimm sinnum steypt stjórn landsins á síðustu hálfri öld og herforingjar telja það mikilvægt hlutverk hersins að gæta að þess að stjórnmál og trú séu aðskilin í landinu.

Stjórnvöld hafa brugðist ókvæða við yfirlýsingunni frá í gær. Cemil Cicek, dómsmálaráðherra, segir óhugsandi að stofnun á borð við herinn, sem tengist forsætisráðherranum, gefi frá sér yfirlýsignar gegn stjórnvöldum í nokkru máli. Tyrkland sé lýðræðisríki þar sem lög gildi. Herráðið sé stofnun sem taki við skipunum frá stjórvöldum og það sé stjórnarskrá landsins og tengd löggjöf sem skilgreini hlutverk hersins og herráðsins. Samkvæmt stjórnarskrá Tyrklands beri herráðið ábyrgð gagnvart forsætisráðherra.

Olli Rehn, sem fer með málefni tengd stækkun Evrópusambandsins í framkvæmdastjórn þess, segir mikilvægt að herinn láti lýðræðislega kjörna ráðamenn taka ákvarðanir í þessu máli. Rehn lagði áherslu á að virðing fyrir lýðræði væri ein frumforsendan fyrir aðild Tyrklands að ESB.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×