Erlent

Rússnesk herþyrla skotin niður

Óli Tynes skrifar
Mi-8 herþyrla, eins og sú sem var skotin niður í Tsjetsníu.
Mi-8 herþyrla, eins og sú sem var skotin niður í Tsjetsníu.

Sautján rússneskir hermenn fórust þegar herþyrla var skotin niður í Tsjetsníu, í dag. Interfax fréttastofan hefur þetta eftir heimildarmönnum innan hersins. Um borð í þyrlunni voru þrír flugliðar og 14 hermenn. Þyrlan var ásamt tveimur öðrum í hernaðaraðgerðum í suðurhluta landsins.

Interfax segir að mikill skotbardagi hafi geisað milli rússneskra hermanna og uppreisnarmanna, þegar þyrlan var skotin niður. Rússnesk yfirvöld staðfesta að þyrla hafi farist á þessum slóðum, og verið sé að rannsaka tildrögin.

Þótt Tsjetsnía hafi ekki verið mikið í fréttum undanfarin misseri ríkir þar sami ófriðurinn og undanfarin ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×