Erlent

Díana strippaði fyrir Karl

Díana prinsessa strippaði fyrir Karl prins, til þess að reyna að bjarga hjónabandi þeirra. Þessu er haldið fram í nýrri bók þar sem prinsessunni er ekki borin vel sagan. Höfundurinn, Tina Brown segir auk þess að hún hafi gifst Karli eingöngu til þess að verða prinsessa.

Ekki er talið líklegt að bók Tinu Brown verði vel tekið í Bretlandi, þar sem Díana er enn dáð og elskuð. Brown segir að þegar Díana reyndi að halda í Karl með því að striplast hafi Camilla Parker-Bowles þegar verið komin til sögunnar, sem frilla prinsins.

Brown segir að einnig að móðir Díönu hafi spurt hana að því hvort hún giftist af ást. Svarið hafi verið; "Hvaða máli skiptir það."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×