Innlent

Falsaðir peningaseðlar í umferð

Lögregla hvetur afgreiðslufólk að vera á varðbergi gagnvart fölsuðum peningaseðlum sem eru í umferð. Nokkur tilvik hafa verið tilkynnt að undanförnu þar sem starfsfólk verslana hefur tekið við heimagerðum seðlum.

Huga ber að gæðum pappírsins, vatnsmerki og segulrönd.

Lögregla beinir þeim tilmælum til afgreiðslufólks að það taki ekki við hugsanlega fölsuðum seðlum. Verði það vart við tilraunir til að nota slíka seðla virði það manneskjuna vel fyrir sér. Þá ber að hafa strax samband við lögreglu og gefa upp helstu einkenni og annað er máli kann að skipta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×