Erlent

Stuðningur Bayrou gæti ráðið úrslitum

Svo virðist sem miðjumaðurinn Francois Bayrou ráði miklu um hver verði næsti forseti Frakklands þó hann hafi ekki náð í seinni umferð kosninganna. Stuðningur hans gæti ráðið úrslitum að mati stjórnmálaskýrenda. Valið stendur milli hægrimannsins Nicolas Sarkozy og sósíalistans Segolen Royal.

Á forsíðu franska blaðsins Le Parisien í morgun segir að kjósendur miðjumannsins Francois Bayrou, sem hafnaði í þriðja sæti, ráði úrslitum í annarri umferð 6. maí næstkomandi. Blaðið Liberation spáir harðri baráttu, konunglegri jafnvel, með vísan í nafn sósíalistans Segolen Royal.

Niðurstaðan í gær var eftir bókinni. Frambjóðendur sósíalista og hægrimanna fara í næstu umferð líkt og spáð var. Miðjumenn geta þá valið hvort þeir halli sér til hægri eða vinstri. Bayrou hefur boðað yfirlýsingu á miðvikudaginn. Hvað í henni felst er óvíst - hugsanlega stuðningur við annan frambjóðendanna eða þá við hvorugan.

Torfi Tulinius, prófessor í frönsku og áhugamaður um frönsk stjórnmál, segir Bayrou hafa það markmið að tryggja flokk sinn sem stærstan í þingkosningum í Frakklandi í júní næstkomandi. Það muni ráða því hvernig hann tjái sig á miðvikudaginn.

Fjórði í kosningunum í gær varð hægri öfgamaðurinn Jean-Marie Le Pen sem bauð sig fram til forseta í fimmta sinn. 2002 náði hann óvænt í aðra umferð. Að þessu sinni tókst það ekki og fékk hann tíu komma fjögur prósent atkvæða. Margir Frakkar eru sagðir hafa varpað öndinni léttar þar sem hörð andstaða hans við innflytjendur hafi ekki fengið hljómgrunn. Þakka megi Sarkozy niðurstöðuna. Dominique Moisi, stjórnmálaskýrandi, segir hann hafa tekist markmið sitt, að fá þriðjung stuðningsmanna Le Pen til að kjósa sig. Það hafi lagt Le Pen að velli.

Samkvæmt skoðanakönnunum sem birtar voru í gærkvöldi eftir að úrslit lágu fyrir fengi Sarkozy á bilinu 52-54% atkvæða í síðari umferð kosninganna en Royal 46-48% atkvæða. Sjónvarpskappræður Sarkozy og Royal verða 2. maí næstkomandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×