Innlent

Fækka þarf apótekum um þriðjung

Fækka þarf apótekum á Íslandi um þriðjung til að lækka lyfjaverð, segir formaður Lyfjagreiðslunefndar. Lyf á Íslandi eru sextíu prósentum dýrari en lyf að meðaltali á Evrópska efnahagssvæðinu. Þetta kemur fram í nýútkominni könnun Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins.

Hagstofa Evrópusambandsins gerði könnun á lyfjaverði í 33 Evrópulöndum. Borið var saman verð á 181 vinsælu lyfi í nóvember 2005. Ísland lendir í öðru sæti, er með næstdýrustu lyfin í Evrópu, 60 prósent yfir meðalverði, á eftir Sviss þar sem þau eru 87% yfir meðalverði í Evrópu. Í Danmörku og Noregi eru þau um 20% yfir meðalverði og 11 Finnlandi. Af Norðurlöndunum er aðeins Svíþjóð undir evrópsku meðalverði. Langódýrustu lyf álfunnar fást hins vegar í Makedóníu.

Páll Pétursson, formaður Lyfjagreiðslunefndar, segir tölurnar frá Eurostat úreltar. Lyf hafi lækkað um hundruð milljóna síðan nóvember 2005. Nýrri samanburður frá desember 2006 á þrettán sérvöldum mikið seldum lyfjum í nokkrum Evrópulöndum sýna skárri mynd. Þær sýna, segir Páll, að heildsöluverð er á svipuðu róli hér og í nágrannalöndunum, hins vegar sé smásöluverðið út úr apótekinu mun hærra. Aðspurður hvort álagning apótekara sé of há, svarar Páll og lyfjadreifing sé dýr á Íslandi og það þurfi að fækka apótekum um þriðjung.

Aðeins Danir leggja hærri virðisaukaskatt á lyf en Íslendingar. Hér er hann 24,5% en 25% í Danmörku. Í Finnlandi er hann til dæmis 8% og enginn í Svíþjóð og á Bretlandi. Hann skiptir verulegu máli, segir Páll. Og svo er það fákeppnin en Páll segir of fáa versla með lyf á Íslandi.

 

 

 

 

 

 

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×