Erlent

12 ára gamall böðull

Óli Tynes skrifar
Böðullinn ungi.
Böðullinn ungi. MYND/AP

Talibanar í Afganistan notuðu tólf ára gamlan dreng sem böðul, þegar þeir tóku af lífi mann sem var sakaður um að hafa aðstoðað bandaríska hermenn. Drengurinn hjó höfuðið af manninum, og var það tekið upp á myndband.

Arabiska sjónvarpsstöðin al-Arabiya sagði frá aftökunni og birti myndskeið. Sá sem tekinn var af lífi var sakaður um að hafa hjálpað bandaríkjamönnum að hafa upp á háttsettum talibanaforingja, í desember síðastliðnum. Hann var síðan drepinn í loftárás.

Hinn meinti svikari var dæmdur til dauða og tólf ára drengur valinn til þess að höggva af honum höfuðið. Ekki hafa verið gefnar skýringar á því hversvegna drengurinn var valinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×