Erlent

Enga blauta kossa

Ísraelsk kona beit óvart stykki úr tungu kærasta síns, í heitum ástarleik. Sem betur fer gleypti hún ekki bitann, og ók kærastanum á ofsahraða á næsta sjúkrahús, þar sem hann komst undir læknishendur. Heilbrigðisþjónusta er á háu stigi í Ísrael, og læknum tókst að sauma hinn brottnumda bita aftur á tunguna.

Kærastinn var svo sendur heim af sjúkrahúsinu. Honum var ráðlagt að dreypa á ísvatni, meðan sárið væri að gróa. Já...og forðast franska kossa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×