Innlent

Hvað kostar landsfundur?

Sjálfstæðisflokkurinn býst ekki við að gefa sérstaklega upp kostnað við landsfundinn um helgina. Framkvæmdastjórinn býst við að hann verði svipaður og fyrri ár. Aftur á móti verður kostnaðurinn gefinn upp til Ríkisendurskoðunar eins og flokkunum er skylt samkvæmt nýjum lögum um fjármál stjórnmálaflokka. Ríkisendurskoðun birtir síðan opinberlega útdrátt úr ársreikningi flokkanna, og þá hugsanlega verður upplýst hvað landsfundirnir hafa kostað. Ekki náðist í framkvæmdastjóra Samfylkingarinnar í morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×