Erlent

Glæpahringur drepur 17 manns í Mexico

Lögreglan í Mexico fann sautján lík sem búið var að fleygja á göturnar eða geyma í bílum þvert yfir Mexico í gær. Fimm manns fundust látin í sendiferðabíl í borginni Kancun. Tveir aðrir fundust í bíl um 100 mílur frá Mexico borg. Á miða sem fannst á vettvangi er Joaquin Guzman, forsprakki glæpahringsins Sinaloa hótað, en hann slapp úr fangelsi árið 2001.

Fregnir herma að á svæðinu séu tvær glæpahringar að rífast um yfirráð og að þetta sé einn þáttur í því.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×