Erlent

Norski dráttarbáturinn sokkinn

Bourbon Dolphin
Bourbon Dolphin

Norski dráttarbáturinn Bourbon Dolphin sökk í gær undan Hjaltlandseyjum eftir að mara í hálfu kafi síðan á skírdag. Átta menn úr áhöfn bátsins létu lífið þegar bátnum hvolfdi skyndilega.

Lík þriggja manna hafa fundist en talið er að hinir átta hafi verið inni í bátnum. Því var lögð áhersla á að draga bátinn til hafnar en vonir um að það mætti takast brustu endanlega þegar hann sökk í gær.

Þeir sem drukknuðu voru allir Norðmenn, þeirra á meðal fjórtán ára drengur sem var í starfsnámi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×