Innlent

Líkamsárás í strætóskýli um hábjartan dag

MYND/Vilhelm

Ráðist var á sextán ára dreng og 14 ára vinkonu hans í Breiðholti um hádegisbilið í dag. Parið átti sér einskis ills von þar sem það beið í strætóskýli þegar fjórmenningar stöðvuðu bifreið sína og réðust á þau. Fjöldi ökumanna varð vitni að árásinni, en aðhafðist ekkert.

Þrír piltar kýldu drenginn í andlitið og spörkuðu síðan án afláts í hann þar sem hann lá í skýlinu. Stúlka í hópnum réðist að vinkonu drengsins, hárreitti hana og hrinti. Árásin er óhugguleg að því leiti að hún á sér stað í miðri viku og um hábjartan dag. Þá eru engin tengsl á milli árásarmannanna og fórnarlambanna, en parið er búsett á landsbyggðinni.

Óttast var að drengurinn hefði nefbrotnað, en svo reyndist ekki vera við skoðun á slysadeild. Hann var hins vegar lemstraður og marinn víða á líkamanum.

Að sögn lögreglu hefur drengurinn lagt fram kæru og hefur hún grun um hverjir eru gerendur. Parið gat gefið lýsingu á bílnum og hluta af bílnúmeri hans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×